Glee leikkonan Naya Rivera hefur staðið í ströngu upp á síðkastið en nýlega sleit fyrrum unnusti hennar trúlofun þeirra og sagði hann hana þurfa andlega hjálp vegna skapofsa. Dramað í kringum Nayu endar ekki þar en sá orðrómur hefur verið á lofti að Naya hafi verið rekin úr Glee þáttunum þar sem hún var ekk viðstödd upptökur á lokaþættinum í nýjustu þáttaröðinni. Upplýsingafulltrúi sjónvarpsstöðvarinnar FOX sem framleiðir þættina batt þó enda á þennan orðróm í dag.
„There is no truth to the rumor Naya has been fired from the show. She remains under contract to Glee.“
Leikkonan á vonandi bjartari daga framundan en miðað við nýjustu myndirnar sem Naya lét inná Instagram síðuna sína virðist hún hafa engar áhyggjur af öllu dramanu.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.