Þessar frábæru ljósmyndir voru teknar þegar Kardashian systurnar, Kim og Kourtney voru að svamla um í Bláa Lóninu með fylgiliði sínum og vinum. Þær voru hér aðallega til að fagna 37 ára afmæli Kourtney, en Kanye West var með í öðrum erindagjörðum og lét hann sér nægja að standa á bakkanum.
Sjá einnig: Eru Blac og Kim orðnar perluvinkonur?
Ekki var annað að sjá en þau skemmtu sér mjög vel og notaði Kim tækifærið og lét aðstoðakonu sína Steffanie Sheppard taka af sér fjöldan allan af myndum. Hún hefur eflaust vinninginn yfir þær konur sem hafa farið einstaklega vel farðaðar í lónið, Kourtney var náttúruleg og virtist afar sæl með upplifunina.
Sjá einnig: Kim sýnir MIKLA brjóstaskoru
Besti vinur Kim, Jonathan Cheban fór allur inn og leyfði sér VIP meðferðina, fékk sér maska og nudd, en þau nutu öll lífsins til fullnustu og fengu sér drykki á barnum í sæluvímu.
Sjá einnig: Er Kourtney að sakna gamla lífsstílsins?
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.