Það er gaman að fræða börnin okkar um líkamann og í þessari grein eru skemmtilegar staðreyndir sem að börn ættu að hafa gaman af.
– Heilinn notar um ¼ af því súrefni sem líkaminn notar.
– Hjartað slær um 100.000 sinnum á dag, 36.500.000 sinnum á ári og yfir billjón sinnum ef þú lifir fram yfir þrítugt.
– Rauðu blóðkornin bera súrefnið um líkamann. Þau eru búin til inn í beinmergnum í beinunum okkar.
– Liturinn á húðinni okkar er ákveðinn af því hversu mikið litarefnið melanin líkaminn framleiðir.
– Lungun í fullorðinni manneskju hafa yfirborðsstærð á við 70 fermetra íbúð.
– Svefninn hefur stig sem kallað er REM svefn. REM svefn er um 25% af okkar svefntíma og þegar við náum honum að þá eru draumar okkar mjög raunverulegir.
– Flestir fullorðnir einstaklingar hafa 32 tennur.
– Minnsta beinið í líkamanum er í eyranu.
– Nef og eyru hætta aldrei að vaxa.
– Ungabörn blikka augunum ekki nema einu sinni til tvisvar á mínútu á meðan fullorðnir blikka augunum um 10 sinnum.
– Við erum öll með okkar eigin fingraför, það eru engin fingraför eins. Við höfum líka einstakt tungufar.
– Vinstri hliðin af líkamanum er stjórnað af hægri helmingi heilans og öfugt.
– Sýklalyf eru aðeins virk á bakteríur, sýklalyf virka ekki á vírusa.
– Það tekur líkamann um 12 klukkutíma að melta máltíð til fulls.
– Lyktarskynið er um 10.000 meira næmra en bragðskynið.
Þýðing: Anna Birgis – Heilsutorg.is
Heimildir: sciencekids.co.nz