Brad Pitt og Angelina Jolie eru að skilja en Angelina hefur sótt um skilnað. Ekki er alveg komið á hreint hvers vegna þau eru að skilja en ein af ástæðum skilnaðarins er talin vera andúð Angelina á uppeldisaðferðum Brad.
Það hafa verið sögusagnir á kreiki í marga mánuði um að Angelina og Brad séu að skilja og nú er það komið á daginn, að þau eru að skilja.
Sjá einnig: Alltof grönn Angelina Jolie?
Ástæða skilnaðarins er meðal annars að Angelina var ekki sátt við það hvernig Brad var að ala börnin þeirra upp. Ágreiningur þeirra vegna þessa var víst kornið sem fyllti mælinn. Hún ætlar að fara fram á fullt forræði yfir börnunum þeirra 6.
TMZ hefur eftir heimildarmanni að Angelina vilji ekki vera með sameiginlegt forræði með Brad því hann sé hassreykingarmaður, drykkjumaður og með reiðivandamál og það geri hann hættulegan börnunum.
Í sumar höfðu hjónin áform um að ættleiða 7. barnið í fjölskylduna til þess að reyna að bjarga hjónabandinu, en aldrei varð af því.