Hversu ólíklegt er sú tilhugsun að storma á HM leik í fótbolta, mála fánalitina á báðar kinnar og ganga út með fyrirsætusamning við hárfyrirtækið L’Oréal nokkrum klukkutímum seinna?
Hugmyndin er eins og klippt út úr ævintýri og ætti jafnvel heima í Hollywood mynd, en stundum er veruleikinn ótrúlegri en fantasíurnar sjálfar. Þetta gerðist fyrir nokkru og það í Belgíu, en það var hin sautján ára gamla Axelle Despiegelaere frá Belgíu sem vakti heimsathygli á netinu eftir að árvökul linsa ljósmyndara fangaði hana á mynd í fánalitunum.
Þetta er ljósmyndin af Axelle sem gerði allt vitlaust á netinu og landaði henni þáttöku í auglýsingu:
Axelle deildi þessari mynd á Facebook síðu sinni sem seinna var lokað vegna hneykslis:
L’Oréal Professional Belgique, sem sá ekki hneykslið fyrir fremur en Axelle, var ekki lengi að grípa tækifærið, hafði uppi á stúlkunni strax eftir leikinn og útkomuna má sjá hér:
[youtube width=”600″ height=”320″ video_id=”E86j4khRnwY”]
En skjótt skipast veður í lofti. Axelle, sem fylltist eldmóði, öðlaðist tæplega 300.000 aðdáendur á örskotstundu á Facebook – deildi glaðhlakkanleg ljósmyndum frá sumarfríinu, hló og lék við hvern sinn fingur – óafvitandi að stóri skandallinn var í nánd.
Nýfengnir aðdáendur stúlkunnar fylltust reiði þegar þessa mynd bar fyrir augu þeirra:
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.