
Justin Bieber er ekki vinsælasti söngvari í heimi þessa dagana en fólk hefur samt sem áður mjög gaman að því að tala um hann og það sem hann gerir.
Þessi mynd var birt á Instagram og sýnir stjörnuna vera að vinna tónlist í tölvunni sinni og við myndina stóð: „Stúdíó í eldhúsinu“.
En þá kemur þetta vandræðalega. Justin virðist vera niðursokkinn í vinnuna sína og allt að gerast, EN þá sjáum við að heyrnartólin hans eru ekki í sambandi.