Snoop Dogg, Stevie Wonder og Pharrell Williams hafa – öllum að óvörum – tekið höndum saman. Drengirnir gáfu út smellinn California Roll fyrir fáeinum dögum, en hið ólíklega en mjög svo geðþekka tríó dásamar þar lögleiðingu mariuana jurtarinnar í lækningaskyni í Kaliforníufylki og er raddblærinn ljúfur eins og vænta má reyndar af efnistökunum sjálfum.
Sjá einnig: Geðveiki af völdum kannabisneyslu
Eitt verður því ekki tekið af bandarísku þjóðinni, sem er fremst meðal jafningja þegar að markaðssetningu kemur – að tilfinningahitann ætlar alveg um þverbak að keyra þegar að lagabreytingum á þingi kemur. Þannig syngja vitleysingarnir (ef svo má kalla tónlistarmennina þrjá) í smellinum:
Get yourself a medical card, yeah, ’cause that’s how California rolls
Textann má svo lesa í heild sinni hér en hinn nýji baráttusöngur grasreykingarfólks mun þriðja smáskífa af nýrri plötu Snoop Dog sem kemur formlega út þann 12 maí – eða á morgun, þriðjudag. Hægt er að nálgast breiðskífuna sem ber nafnið BUSH af iTunes – en hér má heyra California Roll – sem er eins kyns óður til lögleiðingar kannabis í lækningarskyni í Kaliforníufylki:
Sjá einnig: 9 ára stúlka kærir foreldra sína fyrir hassreykingar
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.