Vitundarvakning hefur átt sér stað á síðustu árum og færst hefur í aukana að fólk forðist að nota rotvarnarefni í snyrtivörum vegna óæskilegra áhrifa þeirra á líkamsstarfsemina. Fyrir utan húðertingu hafa rannsóknir sýnt fram á tengsl rotvarnarefna og krabbameins, röskunar á hormónastarfsemi, stökkbreytinga í frumum, fæðingargalla svo nokkuð sé nefnt.
Nýverið opnaði Coolcos snyrtivöruverslun í Smáralind sem hefur á boðstólnum snyrtivörur sem alfarið eru lausar við þessi skaðlegu aukaefni. Að sögn Helgu Karólínu förðunarfræðings og annars eiganda verslunarinnar innihalda vörur fyrirtækisins hvorki rotvarnar né ilmefni og allar eru þær ofnæmisprófaðar.
Coolcos er nýlegt danskt merki, en fyrsta verslun Coolcos var opnuð í Danmörku árið 2012. Velgengni fyrirtækisins hefur gengið vonum framar og í dag eru hinar dönsku snyrtivörur nú fáanlegar víðsvegar um heiminn, enda eru þær á verði sem flestir ættu að ráða við.
Vöruúrval Coolcos er breitt og litadýrðin mikil, eins og appelsínugulur maskari í versluninni ber vott um. “Í haust verður einblínt á náttúrulega fegurð, en með ýktum hætti þó eins og með því að nota mikið af maskara og fallegan eyeliner með” heldur hún áfram aðspurð hvaða tískustraumar eru áberandi í förðun þessa dagana. Að sögn Helgu Karólínu verða náttúrulegar augabrúnir og dökkar varir í 90´s stíl líka áberandi í vetur, s.s. fjólubláir og brúnir varalitir. Hvað augun varðar þá er rauðbrúnn augnskuggi blandaður appelsínugulum málið og fyrir þær sem þora setur appelsínugulur maskari á neðri augnhárin punktinn yfir i-ið.
Að lokum hlýtur að vera mikilvægast af öllu hjá okkur konum að láta ekki glepjast , vera meðvitaðar og horfa gagnrýnum augum á hvað við innbyrðum í gegnum stærsta líffærið okkar, húðina.
Ljósmyndir: Coolcos
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.