Eins og alþjóð veit lést hin ástsæla útvarpskona Valdís Gunnarsdóttir langt fyrir aldur fram aðeins 55 ára gömul. Valdís Gunnars eins og hún var alltaf kölluð kenndi okkur Íslendingum eitt og annað um ameríska siði. Lagði hún ríka áherslu á Valentínusardaginn og það má þakka henni að við erum farin að gefa ástvinum gjafir á þessum degi og gera vel við okkar fólk. Ekki má gleyma „karlmenn og hvítir sokkar!“ Valdís náði að koma því inn hjá herramönnum að þeir eigi ekki að klæðast hvítum sportsokkum við jakkafötin eða sparibuxur.
Valdís lætur eftir sig ungan dreng og hvetja vinir hennar fólk til að styrkja hann og benda á söfnunarreikning sonar hennar fyrir þá sem vilja minnast hennar: 0546-14-402988. Kt. 070594-2429.