Söfnun vegna útfarar ungrar konu – lést í bílslysi

Kæru vinir, í dag kvaddi elskuleg vinkona okkar þennan heim hún Berglind Heiða Guðmundsdóttir langt fyrir aldur fram í slysi á Reykjanesbrautinni þann 14.11.2013.

http://www.dv.is/frettir/2013/11/15/ekid-konu-reykjanesbrautinni/

Berglind var vinamörg og eiga margir fallegar og góðar minningar um hana. Við ákváðum að taka okkur saman nokkrar stelpur og aðstoða aðstandendur Berglindar við að safna fyrir fallegri útför fyrir hana.
Draumur okkar er að gera útförina sem fallegasta. Við vitum að aðstandendur hennar eiga um mjög sárt að binda og væri það þeim ómetanlegt ef hægt væri að létta af þeim áhyggjum við að fjármagna jarðaför sem og legstein síðar með.
Berglind var falleg, geislandi , brosmild og ljúf stelpa sem margir koma til með að sakna. Okkur þætti mjög vænt um ef þið gætuð hjálpað okkur með þetta framtak svo við náum að safna fyrir útförinni sem haldin verður og legstein. Allir peningar fara beint til móður Berglindar Heiðu.
Ef þú vilt vera svo yndisleg/yndislegur og hjálpa okkur að framkvæma þetta þá er reiknigsnúmerið

528-14-402101 og kt. 201182-4849

en Sigurrós Yrja heldur utan um það. Ef þú vilt frekari upplýsingar þá er hægt að nálgast þær hjá Láru Einarsdóttur sem er frænka Berglindar en símanúmer hennar er : 8487263 og netfang le@hive.is
Margt smátt gerir eitt stórt.Þess má geta að þetta framtak er gert í samvinnu við móður Berglindar sem er afar þakklát og snortin yfir þessu öllu.

SHARE