Söngkonan flotta Cheryl Cole hefur fengið sér risastórt húðflúr og nær það frá miðju baki hennar og niður fyrir rasskinnar, svo það hylur alveg rass stúlkunnar.
Cheryl, sem er 30 ára, hefur haft húðflúrið í einhverja 8 mánuði og voru aðdáendur hennar mjög spenntir að fá að sjá flúrið. Það var þó stærra en fólk átti von á en Cheryl er ánægð með verkið og segir að þessar rósir hafi tilfinningalegt gildi fyrir hana.