Kardashian-fjölskyldan skrifaði nýlega undir risastóran samning við E! og verða að minnsta kosti framleiddar fjórar þáttarraðir til viðbótar af stórfína sjónvarpsefninu, Keeping up with the Kardashians. Það er þó einn aðili sem kemur líklega ekki til með að sitja æsispenntur fyrir framan sjónvarpið, Burt Jenner – sonur Bruce Jenner frá fyrra hjónabandi.
Burt hefur lítið verið í sviðsljósinu. En að hans sögn hætti faðir hans að hafa afskipti af honum um leið og hann gekk í hjónaband með Kris Jenner árið 1991.
Þrátt fyrir að vera tengdur einni ríkustu fjölskyldu í Bandaríkjunum hefur Burt verið heimilislaus tvisvar. Hann ræddi þessi mál nýlega í útvarpsviðtali, þar sem hann sagði einnig að fáir hefðu almennt vitneskju um tilvist hans. Hann er í nánast engu sambandi við föður sinn í dag. ,,Ég kæri mig ekkert um að tilheyra þessari fjölskyldu.”
Hann póstaði þessari mynd einmitt á Instagram fyrir fáeinum mánuðum. Sem sýnir glögglega hvaða álit hann hefur á Kardashian-fjölskyldunni.
Ég væri alveg til í þennan bol, svona í öðrum fréttum.
Tengdar greinar:
Kylie Jenner (17) búin að fara í 6 lýtaaðgerðir
Bruce Jenner vill breyta nafni sínu í Bridget
Hefur Bruce Jenner hafið kynleiðréttingarferlið? – Myndir
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.