Þátturinn Minute to Win It hefur heldur betur slegið í gegn hér á landi og þáttur kvöldsins er heldur betur spennandi.
Hin 21 árs gamla Berglind Ómarsdóttir spreytir sig í Minute to Win it á SkjáEinum í kvöld. Berglind, sem starfar á elliheimilinu Grund, skalf af stressi í tökunum en það er spurning hvort stressið víki fyrir keppnisskapinu í kvöld?
Sigrún Ingólfsdóttir segir hnén hafa leikið á reiðiskjálfi þegar kom að henni að leysa þrautirnar en hún myndi gera þetta allt aftur, ef tækifæri gæfist! Við sjáum Sigrúnu takast á við þrautir kvöldsins í Minute to Win it kl. 20:15.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.