Á dögunum var nýr auglýsingamiðill settur í gang sem að gerir einstaklingum kleift að nálgast tilboð og afslætti í gegnum Snapchat. Þessi nýji auglýsingamiðill heitir Súpersnapp og gengur undir notendanafninu „supersnapp.is“ á Snapchat.
Súpersnapp miðlar tilboðum og afsláttum á mat, afþreyingu, fötum og fylgihlutum, svo dæmi séu tekin, frá hinum ýmsu fyrirtækjum. Auglýsingarnar birtast í sögu (story) og er notandanum þannig gert kleift að horfa á þær eins oft og hann sjálfur kýs, í 24 klukkustundir.
Kosturinn við þessa tegund auglýsingamiðils fram yfir aðra er það litla áreiti sem hlýst af honum. Með því að vera vinur supersnapp.is getur þú nálgast auglýsingarnar þegar þér hentar.
Það sem er sérstaklega spennandi við miðilinn er Súpersnapp Kapphlaupið. Þar gefst fólki tækifæri á að vinna sér inn fríkeypis vöru og/eða þjónustu, líkt og bíómiða, út að borða og síðast en ekki síst iPhone 6!
Því er um að gera að gerast vinur supersnapp.is á Snapchat og hafa ekki aðeins aðgang að flottum tilboðum og afsláttum, heldur eiga jafnframt möguleika á glæsilegum vinningum!
Tengdar greinar:
Lærðu nokkur „trix“ á Snapchat! – Myndband
Fjöldi Íslendinga fær klám á hverjum degi á Snapchat – Myndir
ATH FORELDRAR! er barnið þitt á snapchat?
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.