Aðdáendur Kardashian fjölskyldunnar ættu að vita það að Rob Kardashian er loksins komin aftur í sviðsljósið eftir að hafa forðast það eins og heitan eldinn síðustu ár.
Sjá einnig: Auglýsir sokkalínu Rob Kardashian með undarlegum hætti
Hlutirnir breyttust mikið fyrir Rob eftir að hann byrjaði með núverandi kærustunni sinni, Blac Chyna, en eftir uppákomu gærdagsins ætti enginn að vera í vafa með það hvort þau séu saman eða ekki.
Ljósmyndarar náðu mynd af þeim í afar innilegum sleik fyrir utan húðsnyrtistofuna Epione. Blac var ákafari en Rob í því að sýna heiminum að þau ættu svo sannarlega í ástarsambandi en Rob virtist vera spenntari fyrir því að fara inn í bíl.
Sjá einnig: Rob hefur snúið lífi sínu í 180 gráður
Robert sem þyngdist um rúmlega 45 kíló á síðasta ári er byrjaður að grennast aftur og lítur hann stöðugt betur út. Hann hefur með hjálp Blac verið að einbeita sér að því að æfa og borða heilsusamlegra fæði sem er greinilega að skila honum árangri.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.