Sorpritið STAR staðhæfir að Scott Disick og Kendall Jenner eigi í sjóðheitu ástarsambandi og að Kourtney, sem er heitbundin Scott og og móðir þriggja barna þeirra, hafi látið þessi orð falla þegar upp komst :
ÞAU ERU DAUÐ FYRIR MÉR!
Heimildir STAR sem þykja í meiri lagi vafasamar, byggja á þessari ljósmynd sem Kendall deildi fyrir stuttu á Twitter meðan á innkaupaferð þeirra Scott vestanhafs stóð fyrir skemmstu. Sorpritið segir stöðu Kendall gefa frygð til kynna, en stúlkan hefur nú eytt ljósmyndinni af Twitter.
SHOPPING WITH THE LORD
Ekki er langt síðan sú saga fór a flug að Scott héldi við Khloe, hina systur Kourtney, eftir að þau skruppu saman í innkaupaleiðangur í Hamptons meðan sól var hvað hæst á himni í sumar. STAR sparar ekki stóru orðin heldur segir framhjáhaldið hafa staðið yfir í langan tíma og að hin 19 ára gamla Kendall hafi skriðið upp í fang Scott meðan Kourtney var enn ólétt af þriðja barni þeirra.
Við það tækifæri birti slúðurritið IN STYLE aðra forsíðumynd – en í það skiptið var það Khloe sem blasti við. Af fyrirsögnum mátti dæma að Kardashian fjölskyldan væri sundruð, Scott hefði viðurkennt allt fyrir Kourtney og að Khloe væri brjáluð:
Kardashian fjölskyldan hefur svarað fullum hálsi á Twitter og reið Khloe á þannig á vaðið þegar forsíða STAR blasti við og sagðist vera brjáluð, þar sem hún hefði verið á undan Kendall í faðm Scott:
I’m really pissed about this whole @KendallJenner and @ScottDisick thing!! Scott, I thought it was you and I that was having the affair!
Þær Kendall og Kourtney skárust síðar í leikinn og sjálfur Scott svaraði ásökunum STAR og IN STYLE með háðsglósum, en hvað sem hæft er í sögusögnum sorpritanna um hamslausa kynhvöt Scott – má þó með sanni segja að engan skilnaðarbrag er að sjá á nýlegri ljósmynd af þeim hjónakornum – undir yfirskriftinni:
Always nice being with my beautiful fox
Að vísu birti Scott svo aðra ljósmynd nokkrum dögum seinna af þeim Khloe saman og sagði við það tækifæri:
I have said it once and I will say it again I’m in love with the koko @khloekardashian
Því er vart erfitt að sjá hvers vegna sorpritin keppast við að lesa milli línanna – það er aldrei dauð stund hjá Kardashian fjölskyldunni.
Tengdar greinar:
Kim Kardashian hæðist snilldarlega að eigin sjálfsdýrkun
Stjúpfaðir Kardashian systranna loksins tilbúinn að ræða útlitsbreytingarnar
Kate Middleton skilaði gjöf frá Kim Kardashian
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.