Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Stellu í orlofi næstkomandi föstudag. Stella er Íslendingum að góðu kunn, flest kunnum við fjölmarga frasa úr myndinni utanbókar enda er kvikmyndin samofin þjóðarsálinni.
Gunnar Gunnsteinsson og Leikfélag Hólmavíkur hafa nú gert leikgerð fyrir svið eftir kvikmyndahandriti Guðnýjar Halldórsdóttur en Gunnar leikstýrir einmitt sýningunni. Sýningin er afrakstur samstarfs Leikfélags Hólmavíkur og Grunn- og tónskólans á Hólmavík, leikrarar og aðstandendur sýningarinnar eru því á öllum aldri auk þess sem ungmenni sjá um lifandi tónlistarflutning.
Sýnt verður í Félagsheimilinu á Hólmavík 6. og 7. Mars, 2., 5. og 13. apríl en janframt verður farið í leikferð á Hvammstanga þann 28. mars. Við lofum mikilli gleðisprengju.
Miðasala er í síma 8490929, Gústi, eða við innganginn.
Free entrance for those who do not speak Icelandic.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.