Tiger Balsam er 100% náttúrulegt hitasmyrsl frá Singapore með yfir 100 ára sögu í 100 löndum. Að baki smyrslisins er auturlensk viska sem miðar að því að skapa vellíðan í hinu daglega lífi. Smyrslið virkar mjög vel á höfuðverki, kvef, gigtareinkenni eða liðbólgur, vöðvabólgur og verki.
Við erum öll að leita að einföldum lausnum sem við getum gert heima fyrir. Þessi lausn er svo sannarlega einföld og þessi smyrsl, frá Tiger Balm, eru alls ekki dýr.
Ég hef sjálf verið með svona á skrifborðinu mínu í nokkra mánuði og er mjög oft að setja þetta á mig þegar ég er orðin stíf í öxlunum. Ég fann svo þessi myndbönd á netinu sem kenna manni að nudda úr sér allskonar verki.
[facebook_embedded_post href=”https://www.facebook.com/video.php?v=10151376138121444&set=vb.234463373362060&type=2&theater”]
[facebook_embedded_post href=”https://www.facebook.com/video.php?v=10151552168031444″]
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.