Tom Hiddleton (35) klæddist bol sem á stendur að hann elski T.S og mætti þar með giska að hann eigi við Taylor Swift. Fjöldi stjarna mætti á ströndina í Rhode Island til að fagna þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna.
Sjá einnig: Taylor Swift hittir nýju tengdamömmuna
Stjörnur á borð við Blake Lively og Ryan Reynolds, Gigi Hadid og Zayn Malik, Ruby Rose og Uzu Aduba vour með fríðu föruneyti á ströndinni og virtust allir skemmta sér konunglega í tilefni dagsins.
Taylor og Tom sýndu öllum hvað þau voru ástfangin með knúsum og kossum á meðan Blake Lively var í stökustu vandræðum með koma í veg fyrir að brjóst hennar dytti upp úr toppnum hennar.
Sjá einnig: Taylor Swift strax komin með annan
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.