Stjörnuspá fyrir ágúst 2024 – Krabbinn

Krabbinn
22. júní — 22. júlí

Þessi mánuður verður mikið upp og niður hjá þér. Stundum eru þér allir vegir færir en stundum þarftu að treysta algjörlega á aðra. Sjálfstæði og einvera eru mjög mikilvæg fyrir þig í þessum mánuði.

Þú hræðist það ekki að gera mistök. Það virðist sem örlög þín séu þér í vil, svo allt endar vel að lokum. Velgengni þín er bara undir þér komin – Þú getur ekki treyst á heppnina. Þig vantar jafnvægi í lífi þínu. Stundum áttu það til að ganga fram af þér og þú verður að virða mörkin þín. Skipulag í daglega lífinu er lykillinn.