Stjörnuspá fyrir ágúst 2024 – Ljónið

Ljónið
23. júlí — 22. ágúst

Allir erfiðleikar og hindranir eru ekki til að stoppa þig. Þú ert farin/n að sjá að þú hefur hæfileika og kraft til að gera hvað sem þú vilt. Þér finnst kannski heilsa þín ekki vera upp á sitt besta þessa dagana, en það þýðir ekki að þú þurfir ekki að passa upp á skrokkinn þinn. Farðu í stutta göngu, hjólaðu eða syntu. Þú munt ekki sjá eftir því.

Eins mikið og þig langar að takast á við ákveðið verkefni með trompi, þarftu aðeins að stjórna orkunni þinni. Þú skalt vera alveg viss í þinni sök áður en þú gefur út stórar yfirlýsingar.