Stjörnuspá fyrir ágúst 2024 – Nautið

Nautið
20. apríl – 20. maí

Sjálfstæði þitt og frumkvæði verður í miklum blóma og þú ættir að láta vaða í það sem þig langar að gera. Þú ættir að reyna að sýna öðrum áhuga. Ef þú ert í föstu sambandi ertu heppin – Maki þinn mun hjálpa þér að koma fótunum niður á jörðina.

Þú sýnir stolt þitt oft mjög kæruleysislega og það bitnar á öðrum. Þú átt það til að vera alltof viðkvæm/ur og hefnigjörn/gjarn og missir stjórn á þér. Þó það sé aldrei auðvelt að gefa hluti sem við þekkjum upp á bátinn, jafnvel slæma hluti, þá er það stundum nauðsynlegt til að halda áfram að lifa og þroskast.