Stjörnuspá fyrir ágúst 2024 – Sporðdrekinn

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Þetta er ekki rétti tíminn til að gefa í og taka þér of mikið í fang. Notaðu þennan mánuð í að fínpússa það sem vel gengur, sköpun þína og vellíðan. Góðir hlutir gerast hægt.

Leitaðu til vina og kunningja og notaðu sambönd þín. Þegar kemur að fjölskyldunni þinni, getur verið að breytingar séu í vændum. Það er kominn tími til að leyfa gömlum sárum að gróa. Þú gætir fengið tilboð um að taka þátt í ævintýri sem er mikil áskorun. Þú verður að treysta öðrum og þeirra mati. Ef þú hefur einhverjar efasemdir ættirðu að bakka frá þessu.