Stjörnuspá fyrir ágúst 2024 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Ekki láta óttann við hið óþekkta stoppa þig í vexti þínum. Treystu á innsæi þitt þegar þú þarft að taka ákvarðanir. Þú átt að hafa trú á þér og standa með þér.

Ef þú hefur verið hikandi varðandi markmið þín og hvernig þú átt að ná þeim, þá er að birta til í þeim málum. Þú ert á krossgötum og þú þarft að leita leiða til að vera jarðtengd/ur og einbeita þér að einum degi í einu. Þér finnst þú óstöðvandi þessa dagana og hugur þinn er á fullu. Vandamálin virðast einhverra hluta vegna léttvægari. Ef einhver spyr þig ráða ertu með öll svörin og vinir og fjölskylda leita til þín.