Stjörnuspá fyrir ágúst 2024 – Vogin

Vogin
23. september — 22. október

Þú berð ekki ábyrgð á öllum heiminum. Þér líður samt stundum eins og þú sért svampur sem dregur í sig öll vandamál fólksins í kringum þig. Ekki vera með samviskubit yfir því að sinna sjálfri/um þér. Hugsaðu líka aðeins um hversu miklum tíma þú eyðir á samfélagsmiðlum. Þú þyrftir kannski aðeins að draga úr því.

Þú verður að velja af kostgæfni skuldbindingar þínar við heimili og fjölskyldu og passa að vera ekki að fórna þér um of og láta það bitna á heilsunni þinni. Þú þarft að læta að leita til annarra. Þetta er ekki tíminn til að vera sjálfstæð/ur og hrokafull/ur.  Þú ættir ekki að gera stóra samninga varðandi vinnuna þína í ágúst.