Stjörnuspá fyrir desember 2024 – Meyjan

Meyjan
23. ágúst — 22. september

Ef þú hefur ekki fundið lífsförunaut þinn, þá verður þér það ljóst í desember, hvernig maka þig langar í. Taktu hlutunum með ró og gefðu þér, og hinum aðilanum, tækifæri til að kynnast á réttan hátt.

Þú finnur fyrir innra jafnvægi og munt leita leiða til að ná markmiðum þínum. Fjármál og skipulag verða í fókus hjá þér og þú gætir tekið mikilvægar ákvarðanir sem munu nýtast þér á næsta ári. Gættu þín á að vinna ekki of mikið og leyfðu þér að njóta hátíðanna.