Vogin
23. september — 22. október
Ef þú hugsar of langt fram í tímann getur það truflað það sem er að gerast hjá þér núna. Þú munt, í desember, þróa innihaldsrík sambönd í persónulega lífinu og þú ert að komast upp á lagið með að njóta dagsins frekar en að hugsa alltof mikið um framtíðina.
Þú upplifir jafnvægi milli vinnu og skemmtunar. Ný tækifæri í samböndum eða vináttusamböndum gætu opnast og þú finnur fyrir þakklæti gagnvart fólkinu í kringum þig. Vertu meðvituð/aður um þína eigin þarfir, sérstaklega varðandi hvíld og sjálfsrækt.