Stjörnuspá fyrir júlí 2024 – Hrúturinn

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Það verða ákveðnar vendingar í sambandsmálum þínum um miðjan mánuðinn og það munu ýmsar staðreyndir renna upp fyrir þér sem þú hefur lokað augunum fyrir. Mánuðurinn mun samt enda á mjög ljúfum nótum og þú munt fara í gegnum góðan tíma, þar sem áhersla þín verður á breytingar á lífsstíl og þú munt fá fullt af hrósi.

Breytingarnar sem þú ert að fara í gegnum eru lúmskar. Það er léttir fyrir þig því það hefur gengið á ýmsu síðustu misseri og þú hefur velt fyrir þér hvenær fari að róast um hjá þér.