Stjörnuspá fyrir júlí 2024 – Ljónið

Ljónið
23. júlí — 22. ágúst

Ótti, depurð og reiði eru allt tilfinningar sem manneskjan finnur fyrir. Þegar þú finnur fyrir þeim, skaltu minna þig á að þú ert ekki ein/n. Passaðu upp á þig. Ef þú getur það ekki, biddu þá um hjálp.

Tengslanet þitt er að stækka og þú ert að fara að tengjast fólki á nýjan og betri hátt. Fólkið sem um ræðir geta verið gamlir vinir, nágrannar og systkini sem munu hjálpa þér að halda jarðtengingu.