Stjörnuspá fyrir júlí 2024 – Nautið

Nautið
20. apríl – 20. maí

Nú er tíminn til að láta drauma þína rætast svo þú verður að koma þér af stað í það. Vertu viss um hvað það er, nákvæmlega, sem þú vilt svo þú vitir í hvaða átt þú átt að stefna. Mundu að það er oft á tíðum mjög mikilvægt að vinna með öðrum svo hlutirnir gangi sem best.

Heppni þín er að aukast svo um munar núna og tækifærin koma til þín á færibandi og þú virðist hafa óþreytandi orku til að ná markmiðum þínum. Það mun þó aðeins rofa til í lok mánaðar og þú færð smá hvíld þá.