Stjörnuspá fyrir júlí 2024 – Steingeitin

Steingeitin
22. desember — 19. janúar

Sambandið er það sem verður í forgrunni í þessum mánuði og þú munt upplifa rómantík og nánd í júlí og finnst þú tilbúin/n til að skuldbinda þig til lengri tíma. Heilsan þín er á góðri leið og það sem þú hefur verið að leggja á þig seinustu misseri er heldur betur að borga sig.

Taktu eftir því hvernig þú átt það til að bæla niður tilfinningar þínar og viðbrögð sem eru þér eðlislæg. Hæfileiki þinn til að vera róleg/ur og hafa stjórn á skapi þínu er aðdáunarverður, en ef þú heldur áfram að bæla allt niðri mun pirringurinn taka allt of mikið pláss í huganum þínum.