Stjörnuspá fyrir júlí 2024 – Vogin

Vogin
23. september — 22. október

Þú getur þetta! Þetta eru skilaboð til þín sem þú verður að hafa í huga í þessum mánuði. Það geta verið einhverjar hindranir í vegi þínum en þú kemst yfir þær. Vertu vakandi fyrir smáatriðum og ekki leyfa ótta og fullkomnunaráráttu að vera fyrir þér. Slepptu tökunum á útkomunni og láttu heilsuna og sjálfsást vera í forgangi.

Þú hefur verið að læra að tjá þig upp á síðkastið. Þú þarft að læra að biðja um það sem þú vilt í ástinni og ástríðunni í lífinu.