Stjörnuspá fyrir júní 2024 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember

Í þessum mánuði munu verða miklar breytingar, sérstaklega ef þú hefur verið föst/fastur í aðstæðum þar sem þér finnst þú hafa verið notuð/aður og ekki metin/n að verðleikum. Að því sögðu, þá mun eitthvað verkefni sem þú hefur unnið að, ganga svakalega farsællega og þú munt uppskera vel. Ekki láta óþolinmæði og lítið sjálfstraust stoppa þig í að fara fram á við.

Leyfðu öðrum að gefa þér góð ráð og lagaðu þig að aðstæðum. Málamiðlanir og samstarfsvilji eru lykillinn að góðum árangri.

Fyrri hluta mánaðarins munt þú vera full/ur af drifkrafti og frumlegheit munu hjálpa þér að ná nýjum hæðum í júní.