Stjörnuspá fyrir júní 2024 – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar — 20. mars

Andleg mál og fjármál eiga hug þinn allan í júní. Það verður brjálað að gera þangað til 20. júní, en ró kemst á eftir það. Það getur verið að þú verðir á ferðinni um landið þitt. Ástin verður áreynsluminni eftir fyrsta fjórðung mánaðarins. Þú þarft að fara þér hægt ef þú ert að stofna til nýs sambands.

Jafnvel þó allt virðist EKKI vera að ganga upp eins og þú planaðir, þýðir það ekki að þú getir ekki fengið það sem þú vilt. Það þýðir bara að þú þarft að leita betur að gleðinni núna. Mundu að þú ert sterk/ur og öflug/ur. Hugsaðu um þig fyrst, jafnvel þó þú þurfir að hafa fyrir því.