Stjörnuspá fyrir júní 2024 – Ljónið

Ljónið
23. júlí — 22. ágúst

Þú ert svo sannarlega sólargeisli í lífi margra sem í kringum þig eru. Þú gleður þá sem eru daprir og heillar alla með þínu ómótstæðilega brosi. Það geta verið einhverjar hindranir í vegi þínum en þú kemst yfir þær. Taktu eftir smáatriðum og ekki leyfa ótta og fullkomnunaráráttu að vera fyrir þér. Slepptu tökunum á útkomunni og láttu heilsuna og sjálfsást vera í forgangi.

Ástin verður í fullum blóma en þú átt það til að vera að flýta þér svolítið þegar kemur að ástinni. Leyfðu ástinni að þróast á eðlilegan hátt. Þá mun hún endast miklu lengur.