Stjörnuspá fyrir júní 2024 – Meyjan

Meyjan
23. ágúst — 22. september

Þú hefur verið að læra að tjá þig upp á nýtt upp síðkastið. Þú þarft að læra að biðja um það sem þú vilt í ástinni og ástríðunni í lífinu. Þú munt þurfa að sýna þitt besta eðli í júní, því tækifærin eru óteljandi. Leyfðu því sem er verið að taka úr lífi þínu, að skolast burt. Opnaðu þig fyrir nýju fólki og nýjum háttum.

Þú ert ekki viðkvæm/ur fyrir að gera mistök og ert því gjörsamlega afslöppuð/aður í vinnu þinni. Þú lætur hindranir ekki stoppa þig og heldur áfram að reyna og yfirleitt gengur það upp. Þú ert umburðarlynd/ur gagnvart öðrum og ert því mjög vel liðin/n í vinnu.