Stjörnuspá fyrir júní 2024 – Nautið

Nautið
20. apríl – 20. maí

Þú getur sóað tíma þínum í þessum mánuði í að vera með eftirsjá, að hugsa um hvað þú hefðir átt að segja eða gera, en við mælum alls ekki með því. Gefðu þér sjálfri/um frelsi frá fortíðinni og einbeittu þér að því sem þú getur gert í dag. Það er svo miklu meira í þig spunnið en þú heldur. Gefðu þér tíma til að líta inn á við og einbeita þér að því að horfa fram á við og aldrei hætta að vona.

Það verður mikið að gera hjá þér í vinnunni fyrstu þrjár vikur mánaðarins en þú munt geta slakað á í seinustu vikunni. Komandi vikur munu reyna á sjálfsaga þinn. Ef velgengni þín er mikil, áttu það til að verða svolítið kærulaus og ofmeta sjálfa/n þig. Það getur haft áhrif á fjárhagsstöðu þína og þú gætir orðið blankari en þú gerir þér grein fyrir.