Stjörnuspá fyrir júní 2024 – Sporðdrekinn

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Þú ert stolt/ur af því sem þú veist og hæfni þinni til að vera alltaf nokkrum skrefum á undan. Þessi mánuður mun vera tileinkaður því sem þú veist ekki og því að endurhugsa það sem þú taldir þig vita. Þú þarft ekki alltaf að vera með allt á hreinu.

Starfsframi þinn er í blóma og samskipti þín við samstarfsfólk eru góð. Þú gætir meira að segja átt von á hrósi frá yfirmanni þínum. Þú færð aðstoð við erfið verkefni og ættir að veita þeim sem hjálpar þér, aðstoð á móti við tækifæri.