Stjörnuspá fyrir nóvember 2024 – Krabbinn

Krabbinn
22. júní — 22. júlí

Þú ættir að vera í betra andlegu jafnvægi í þessum mánuði en í þeim seinasta og það eru alltaf góðar fréttir. Það sem þú ættir að einbeita þér að í þessum mánuði er að setja þig í spor annarra. Í stað þess að festast í þinni eigin sápukúlu, prófaðu þá að sjá hlutina með augum annarra.

Ef þú hefur tekið skref afturábak nýlega, í sambandinu þínu, er tíminn núna til að vinna í þér og í sambandinu. Ekki fara samt aftur í sama gamla farið. Mundu að þú átt líka skilið að fá tíma, athygli og ást.