Vatnsberinn
20. janúar — 18. febrúar
Það er að verða einhver þróun í lífi þínu, hvort sem það er í vinnu eða einkalífi. Þú tekur vel í þessar breytingar en passaðu bara að vera trú/r sjálfri/um þér. Við þurfum alltaf smá aðlögunartíma til að venjast nýjum hlutum. Í samböndum áttu það til að taka „það gamla“ með inn í „það nýja“.
Prófaðu að borða mat sem þú hefur aldrei smakkað áður, helst rótsterkan mat. Njóttu þessara augnablika án þess að vera að kryfja þau of mikið til mergjar.