Stjörnuspá fyrir október 2024 – Fiskurinn

Fiskurinn
19. febrúar — 20. mars

Seinni hluta októbermánaðar, muntu hafa varann á þér og hugsa aðeins meira áður en þú tekur mikilvægar ákvarðanir. Þetta er bara af hinu góða því þetta mun koma í veg fyrir að þú farir fram úr þér.

Þú ert að leggja lokahönd á eitthvert verkefni sem þú hefur verið að takast á við, en þetta verkefni hefur átt hug þinn allan, seinustu misseri. Það getur meira að segja gerst að þú finnir fyrir smá sorg eða eftirsjá þegar þetta er búið. En allt tekur enda um síðir elsku Fiskur og nú er kominn tími til að slaka á og safna orku.