Stjörnuspá fyrir október 2024 – Hrúturinn

Hrúturinn
21. mars – 19. apríl

Þú ert full/ur af orku þennan mánuðinn og finnst þú geta gert nánast hvað sem er, sérstaklega í málefnum sem tengjast vinnunni þinni. Keppinautar þínir ættu að passa sig. Passaðu samt að eldmóður þinn verði ekki til þess að þú virkir samviskulaus. Mundu að fólkið sem styður við bakið á þér, þegar þú ert á uppleið, mun ekki endilega vera með þér á leiðinni niður.

Nýttu hvert tækifæri sem gefst til að láta fólkið þitt vita hversu vel þú kannt að meta þau og þú viljir taka tillit til þeirra í ákvarðanatökum. Þú verður að passa þig á að keyra þig ekki út og muna að hvíla þig. Þú mátt aldrei gleyma að passa fyrst og fremst upp á heilsuna þína.