Stjörnuspá fyrir október 2024 – Ljónið

Ljónið
23. júlí — 22. ágúst

Þú ert að koma þér í daglega rútínu í þessum mánuði og þarft að gera þitt besta til að njóta tímans á milli verkefna þinna. Ef þú setur alla þína orku í þau svið lífsins sem krefjast þess að þú hafir samskipti og deilir hugmyndum þínum með öðrum, gæti það leitt til ánægjulegrar útkomu til lengri tíma litið.

Reyndu að halda fótunum á jörðinni, allavega öðrum þeirra, sérstaklega ef þú sérð eitthvað sem þig langar til að eignast. Er það eitthvað sem þú þarft að eiga? Þú ert yfirleitt með gott innsæi varðandi svona en kannski ekki alveg í október.