Stjörnuspá fyrir október 2024 – Meyjan

Meyjan
23. ágúst — 22. september

Það eru jákvæðir og hamingjuríkir tímar framundan í persónulega lífinu og ef þið hafið tíma til að vera saman, njótið þess. Þið munuð uppgötva að tíma ykkar er vel varið, saman.

Þú skynjar allt mjög djúpt um þessar mundir og þér verður ljóst hverjir eru að segja þér ósatt og eru ekki alltaf mjög heiðarlegir. Ekki fara samt of geyst í að koma upp um málin því fólk tekur því misvel og verður stundum bara að átta sig sjálft.

Íhugaðu hvort þú þurfir að vinna einhverja andlega vinnu, vegna þess að þú átt það til að vera svolítið stíf/ur og passasöm/samur með þínar leiðir og aðferðir í lífinu.