Stjörnuspá fyrir október 2024 – Sporðdrekinn

Sporðdrekinn
23. október – 21. nóvember

Einhver eldri manneskja í lífi þínu, hvort sem það er skyldmenni eða samstarfsfélagi, verður þér mjög mikilvæg í þessum mánuði. Hlustaðu á ráðleggingar þessarar manneskju og taktu mark á henni. Það má vel vera að þér finnist skoðanir hans/hennar vera pínulítið gamaldags en taktu samt mark á þeim.

Taktu eina ákvörðun á hverjum degi um að gera eitthvað öðruvísi en vanalega til að minnka álagið innra með þér og kröfurnar sem þú gerir á sjálfa/n þig. Ef þú gerir þetta meðvitað mun það gera líf þitt mun auðveldara.