Stjörnuspá fyrir október 2024 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Þú þarft ekki að flýta þér, svo þú ættir að gefa þér góðan tíma og einbeita þér. Þú munt eiga auðveldara með að einbeita þér eftir miðjan mánuð, en þá taka við ný og skemmtileg verkefni. Ef þú þarft hjálp, ætti ekki að vera mikið mál að finna réttu manneskjuna í verkið.

Það hitnar eitthvað í kolunum í félagsskap sem þú ert í og þú gætir þurft að stíga upp og taka um stjórnvölin.

Þú þarft líka að standa með sjálfri/um þér og láta í þér heyra. Það mun gerast og þegar þú byrjar að tala, getur þú ekki hætt. Þú hefur þagað alltof lengi.