Stjörnuspá fyrir október 2024 – Vatnsberinn

Vatnsberinn
20. janúar — 18. febrúar

Reyndu að takast á við vandamálin áður en þau vaxa og verða það stór að þau verða óyfirstíganleg, þó það verði til þess að þú þurfir að taka erfið samtöl. Það verður ómaksins virði á endanum, það er alveg klárt.

Þig langar mikið til þess að deila hugmyndum þínum, tengjast nýju fólki og veita vinum þínum innblástur. Samt skaltu ekki gleyma þér í skyndilegri þrá þinni eftir athygli, og mundu að það er allt í lagi að hafa ekki alltaf svör við öllu.