Stjörnuspá fyrir september 2024 – Bogmaðurinn

Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember

Hafðu fjölbreytni í dagsdaglega lífinu þínu og gefðu þér tíma til að vera með vinum sem þú hefur ekki séð lengi eða gefðu þér tíma til að kynnast nýju fólki. Það mun örugglega koma þér á óvart hversu miklu það getur breytt, að gera litlar breytingar á lífi þínu. Núna er líka góður tími til að færa út kvíarnar í starfi þínu og fjárhagurinn getur breyst verulega til hins betra.

Ef þú eltist við drauma þína af krafti mun það auka jákvæðni þína. Hinsvegar verður þú að halda áfram að hugsa vel um sjálfa/n þig. Passaðu að fórna ekki eigin vellíðan til að elta drauma þína.