Stjörnuspá fyrir september 2024 – Vatnsberinn

Vatnsberinn
20. janúar — 18. febrúar

Það er að verða einhver þróun í lífi þínu, hvort sem það er í vinnu eða einkalífi. Þú tekur vel í þessar breytingar en passaðu bara að vera trú/r sjálfri/um þér. Þú hugsar mikið um framtíðina og hvað hafi farið úrskeiðis í fortíðinni. Þú verður að sleppa tökunum á slæmum minningum sem hafa haldið þér í heljargreipum sínum, því þær hindra þig í að sjá hvað skiptir raunverulega máli í lífinu.

Þg langar mikið að til þess að deila hugmyndum þínum, tengjast nýju fólki og veita vinum þínum innblástur. Passaðu samt að gleyma þér ekki í skyndilegri þrá þinni eftir athygli, og mundu að það er allt í lagi að hafa ekki alltaf svör við öllu.