Á facebook heldur Hrafnhildur Geirsdóttir stjörnuspekingur úti síðunni Stjörnuspeki – utanoginnan.is hér ásamt vefsíðunni Utanoginnan.is hér. Hrafnhildur er sjálf fædd 9. júní 1959, með Sól í Tvíbura, Tungl í Krabba og Rísandi Krabbi. Sterkustu stjörnumerkin í kortinu hennar eru Tvíburi, Krabbi, Ljón og Fiskar.
Hrafnhildur sérhæfir sig í stjörnuspeki og býður upp á stjörnukort í einkatíma, skemmtilega hópatíma, framvindugreiningu og fleira tengt stjörnuspeki. Tímapantanir eru í síma 895 8184 eða hg@utanoginnan.is.
Stjörnuspeki hefur átt hug hennar og frítíma allan síðan um aldamótin en allt lífið hefur hún haft áhuga á stjörnuspeki. Fyrir utan að skoða ógrynni stjörnukorta hefur hún farið á námskeið hér heima, sótt fjarnám í Bandaríkjunum og útskrifaðist í maí 2010 með diploma í stjörnuspeki eftir tveggja ára nám í stjörnuspekiskólanum hjá Gunnlaugi Guðmundssyni stjörnuspekingi.
Á síðunni má finna fróðleik um hvert stjörnumerki fyrir sig og spá fyrir árið 2013 fyrir hvert merki. Undirrituð er í krabbanum og um hann segir meðal annars:
“Það verður ekki lognmolla í kringum Krabba á árinu 2013 því þeir hafa þörf fyrir frelsi, sjálfstæði og breytingar á árinu. Krabbar sem eru fæddir á bilinu 25. júní til 5. júlí eiga eftir að finna enn meira fyrir frumkvæði sínu og taka af skarið í málum sem þeir láta sig varða”.
Á síðunni er einnig að finna stjörnuspekihúmor eins og hvernig stjörnumerkin haga sér þegar kemur að uppvaski. Undirrituð er greinilega sporðdreki þegar kemur að þeirri deild heimilisstarfana!
Og þennan um hvernig stjörnumerkjunum gengur að skipta um ljósaperur!
Það er ekki bara lofthæðin upp á 3 metra sem veldur því að ég bið soninn alltaf að skipta um perur.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.